|
|
13.10.2006 13:02:45 / ella
Hæ, nú hef ég ákveðið að hætta að
blogga.
Ég kem þó til með að setja inn færslur í kring um
frí, þannig að þið getið fylgst með hvenær ég verð á
Íslandi.
Vinir og vandamenn, þið fáið fréttir af mér
með tölvupósti.
Ég vildi þó láta ykkur vita að ég er komin með
fína íbúð beint á móti skólanum, ferðin út gekk vel og ég er búin
að koma mér vel fyrir.
Skólinn byrjaði þann 9. okt. og mér líst bara vel
á stundatöfluna og hlakka til að byrja á fullu.
Ástarkveðja, Ella
»
29.09.2006 19:17:12 / ella
Nú styttist í flugið til Íslands... legg af
stað kl. 3.30 í nótt ( 1.30 að íslenskum tíma)... hlakka
ekkert smá til. Ég verð víst að fljúga í
gegnum London og verð lent kl. 14.00 að
íslenskum tíma á Keflavíkurflugvelli.
Ég verð í Reykjavík fram á mánudag en
þá förum við Frosti til Siglufjarðar og verðum þar í viku. Nú
er víst orðið kalt fyrir norðan þannig að ég verð að taka með mér
vetrarföt!!! Hér er veðráttan þannig að ég er alltaf í sandölum,
pilsi og hlýrabol.
Var að komast að því að sjálfur Armani býr í
penthouse íbúð í næsta húsi við Sólrúnu ... við erum þó ekkert að
kíkja í kaffi til hans... eigum það bara eftir.
Sjáumst á klakanum 
»
22.09.2006 22:14:50 / ella
Nú er blíða hér í Mílanó 25. stiga hiti og
sól sem er frábært eftir rigningarsumarið mikla á Íslandi,
rigningin fylgdi mér hvert sem ég fór þessa tvo mánuði sem ég
var á landinu.
Ég er búin að vera að leita mér að íbúð frá því
að ég kom út þann 10. september. Sólrún vinkona var svo góð að
bjóða mér gistingu og bý ég nú hjá henni og þremur öðrum
stelpum.
Þann 9. okt fæ ég afhenda litla íbúð sem er mjög
vel staðsett ... á móti skólanum! Hún er að vísu mjög lítil,
eitt herbergi, eldhús, baðherbergi og gangur ... samt mjög
sæt.
Gabríel er á Íslandi hjá Ömmu & afa á Sigló.
Hann verður á Sigló fram að áramótum og kemur þá væntanlega aftur
út með mér. Ég sakna hans rosalega mikið og lífið er hálfskrítið
hérna án hans
Ég kem á klakann þann 30. sept. og fer aftur út
þann 9. okt. Ég verð bara að hitta Gabríel & Frosta, mömmu
& pabba og alla hina áður en skólinn byrjar þann 11.
okt.
Hlakka til að sjá ykkur, ástarkveðja,
Ella
»
06.07.2006 14:05:07 / ella
Jæja, nú er ég loksins búin í síðasta prófinu, ég kláraði það í
gær og var bara alveg búin eftir það. Kom heim kl. 15. 00 eftir 5.
tíma próf og fór beint í bólið þar sem ég var ekki búin að sofa
nema í 4. tíma síðustu þrjá sólarhringa. Ég átti að vera mætt á
hverfisbarinn kl. 21.00 um kvöldið en þegar Sólrún hringdi þá bara
gat ég ekki rifið mig upp og hélt því bara áfram að sofa, þ.a.l.
vaknaði því úthvíld í morgun kl. 5 og byrjaði að taka til og pakka
niður öllu því sem eftir var í íbúðinni.
Í kvöld ætla ég að flytja draslið mitt í íbúðina hennar Sólrúnar
og svo ætlum við eitthvað fínt út að borða. Flugið mitt er kl. 6.
35 frá Bergamo sem er í 40. mín. fjarlægð frá Mílan, þanni að ég
verð að leggja af stað eitthvað um þrjú í nótt. Ég flýg svo frá
Stansted rúmlega tólf og lendi í Reykjavík um 14. 35.
Það verður ekki smá gott að komast heim í smá kulda, ég er alveg
búin að fá nóg af því að vakna upp í svitabaði allar nætur.
Mér gekk bara vel í lokaprófinu þrátt fyrir að hafa áttað mig
rétt áður en ég átti að kynna mitt verkefni að ég var ekki með
teikningarnar mínar, aðeins um 20. talsins!! Ég fækk því nett
taugaáfall og hljóp heim til að ná í þær, en þær voru ekki þar. Þá
"fattaði" ég að ég hafði komið við á prentstofunni fyrr um
morguninn og mundi hvar ég hafði lagt þær frá mér. Ég hljóp því
þangað og náði í þær og notaði tækifærið til að prent út smá
kynningarefni sem ég var með tilbúið á minnislykli.
Þegar ég kom inn í stofuna þá var nemandinn á undan mér í
röðinni að klára sína kynningu og röðin var komin að mér. Sem betur
fer áttaði kennarinn sig ekki á því að ég var í burtu í 20-30 mín,
þannig að allt gekk upp. Ég gat að vísu ekki undirbúið mig eins og
ég vildi en ég hafði 15. mín. til að kynna mína hönnun á íbúð sem
ég er búin að vera að hanna frá A-Ö í allan vetur. Maður verður að
skipuleggja sig rosalega vel til að geta komið öllu frá sér á
svona stuttum tíma.
Það voru þrír prófdómarar á staðnum, einn arkitekt, einn
innanhúsarkitekt og svo iðnhönnuður sem var kosinn hæfileikaríkasti
iðnhönnuðurinn í heiminum fyrir nokkrum árum.
Lokaeinkunin mín fyrir þetta verkefni var 30/30 +++ , þannig að
ég dúxaði yfir báða bekkina. Varð bara að monta mig, ha, ha,ha. Ég
hefði ekki sætt mig við minna en 30/30 þar sem ég var búin að
leggja svo geðveikt á mig, enda kem ég heim hvítari en þegar ég fór
út fyrir ári síðan.(aðalatriðið)
Nú er ég komin í sumarfí, blogga næst í sept.
Ég kem til með að blogga "live" á kaffihúsum og ölstofum
borgarinnar fram í sept.
Hlakka til að Sjá ykkur elskurnar mínar,
Over and out,
Ella
»
28.06.2006 04:31:59 / ella
Nú er klukkan að verða sex um morguninn og
ég sem hélt að Saki væri sofandi en annað kom nú í ljós.Þar
sem ég var að drepast úr hita ákvað ég að læðast í ískápinn
og ná mér í ískalt vatn, en viti menn hver önnur en Saki var
hálf út úr ísskápnum og minnstu mátti muna að hún fengi vægt
hjartaáfall því henni brá ekkert smá þegar ég kom inn í
eldhúsið.
Það tekur því bara ekki að fara að sofa þar sem
ég er með milljón hugmyndir sem ég þarf að koma frá mér. Því er
best að klára bara verkið á meðan maður er andvaka vegna HITA.
Grínlaust þá sef ég nánast með viftuna í fanginu og samt sem áður
er ég að deyja úr hita. Stelpurnar sem eru með mér í bekk eru líka
að koma klukkan tíu og við ætlum að vinna “Axonometric projection”
af teikningunum okkar saman. Það versta er að við þurfum að vinna
þetta í þrívídd í AutoCadinu og við höfum bara aldrei lært það. Það
er því miður ekki kennt fyrr en á næsta ári! Við finnum eitthvað út
úr þessu.
Ég fékk nett sjokk í gær þegar ég hringdi í
Glitni og ætlaði að millifæra peninga, en konan sagði mér að ég
ætti bara enga reikninga hjá þeim. NB. það er mjög stutt síðan ég
ætlaði að hringja í Íslandsbanka og hann var þá ekki lengur til.
Það virðist vera að bankinn minn sé í einhverskonar FELULEIK. Mér
finnst alveg fáránlegt að ég þurfi að vera að leita að reikningum
mínum út um allt. Nú er ég semsagt í viðskiptum hjá Sparisjóði
Siglufjarðar, var reyndar ekkert spurð um hvort ég vildi vera í
viðskiptum hjá þeim. Ég komst að þessu eftir að
hafa:
A. farið inn á heimabankann minn sem tilkynnti
mér að ég Elín þorsteinsdóttir, væri nú bara alls ekki til og engin
með mína kennitölu væri skráður hjá
Reiknistofu-bankanna.
B. Hringt í Glitni sem sagði mér að ég væri bara
alls ekki í viðskiptum hjá þeim.
C. Þeir sögðu mér líka að bankinn minn hefði
verið SELDUR og þjónustufulltúrinn (eflaust í afleysingum) vissi
bara ekkert hvað mínir reikningar væru niðurkomnir!!!
D. Hringt í stresskasti til M&P sem sögðu mér
hvað gerst hefði, jú,jú Sparisjóðurinn bara búinn að kaupa útibú
Glitnis á Siglufirði, og mér var ekki einu sinni tilkynnt um
það.
HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ GERAST ÞARNA Á KLAKANUM????
ER BARA ALLT AÐ VERÐA VITLAUST Í ÞESSUM BANKAMÁLUM???

Sumir eru víst ríkari en aðrir, Sue stelpa sem er
einmitt að koma klukkan tíu, er víst ein af þessu ríku. Ég hef nú
aldrei tekið eftir því að hún sé eitthvað öðruvísi en við hin, hún
gengur ekki í hönnunarfatnaði og er bara mjög “down to earth”. En
ég komst að því í dag að pabbi hennar er víst einn af ríkustu
mönnum í Kóreu. Ég var eitthvað að fárast yfir því að hún fjarfesti
í einu stykki loftræstingu (sem er mjög dýr) á meðan við vorum að
kaupa viftur á 1400 Kr, sem að auki gera ekkert gagn. Stelpurnar
sögðu mér þá frá ríkidæmi hennar, en það eru því miður ekki allir
eins og Sue !
Um daginn kom bróðir einnar vinkonu minnar í
heimsókn til hennar. Hún er frá Mexíkó og það eina sem þessi
strákur talaði um var hvað íbúðin systur sinnar væri mikil
rottuhola og ógeðsleg og væri hreinlega ekki mönnum bjóðandi, en
þessi rottuhola sem hann er að tala um er nýuppgerð og það er mjög
dýrt að leigja hana. Yfirleitt þurfa tveir að leigja svona íbúð
saman þar sem leigan er mjög há. Þessi stelpa býr ein í þessari
fínu íbúð og hann var að fárast yfir því hvað hún væri lítil. Hann
sagði að það væri fyrir neðan allar hellur að hann þyrfti að búa í
svona rottuholu og hann væri farinn á Hótel Plaza. Svo var hann
eitthvað að monta sig á öllum þjónunum sem þau hafa yfir að ráða.
En þau eru með kokka, barnapíur, bílstjóra og svo framvegis. Saki
sagði nú bara við hann að fyrst hann væri svona hrikalega ríkur þá
væri nú ráð að hann fengi sér stílista og einhverja persónu sem
gæti kennt honum mannasiði. Hann var alveg hrikalega hallærislegur
með skyrtuna opna niður að nafla og var sífellt að tala illa um
systur sína, ekki merkilegur pappír þar á ferð. 
Seinna í dag eru útskriftarnemarnir að sýna
afrakstur vinnu sinna í vetur, ég fer að sjálfsögðu og lít á
verkefni þeirra. Ég fór einnig í júlí í fyrra niður í IED og leit
þá á verkefnin og var mjög heilluð, þessir krakkar eru að gera
ótrúlega hluti. Annars sit ég yfir tölvunni alla daga og nú fer ég
að sjá fyrir endann á þessu öllu. Stefni á að prenta út allar
teikningar á föstudaginn og vinna svo í Módelinu og kynningarefninu
um helgina og fram á miðvikudag. Það er alveg geðveikislega dýrt að
prenta út stórar teikningar í lit í A0 stærð og einnig er efnið í
módelið mjög dýrt. Efniskostnaður fyrir þetta ár er alveg
rosalegur, það er ekki eitt einu sinni eitt A4 blað innifalið í
skólagjöldunum og við erum að tala um skólagjöld uppá 7500 evrur
fyrir árið. Þetta er náttúrulega bara klikkun. Jæja, nú fer að líða
að Expressó bolla, tvöföldum að sjálfsögðu enda verður maður að
halda sér vakandi fram á kvöld. Ciao, Ella 
»
25.06.2006 22:26:38 / ella
Í gær var “menningarnótt” hér í
Mílan, ég byrjaði daginn á því að fara á barinn og horfa á Svía
og Þjóðverja keppa. Ég og Saki komum þegar 15. mín voru liðnar
af leiknum og þá var staðan 2:0 fyrir Þjóðverjum og allir
Svíarnir voru miður sín. Það var aðeins einn þýskur strákur á
barnum og hann var auðvitað frekar glaður.
Fyndið þegar maður þarf að tala mörg
tungumál inn á sama barnum. Ég tala ensku við Saki og hina Svíana,
þýsku við þjóðverjann, ítölsku við barþjónana þar sem þeir skilja
enga ensku, og loks Íslensku við Sólrúnu. Svo er ég farin að skilja
sænsku ágætlega þannig að maður græðir heilmikið á því að vera í
alþjóðlegum skóla.
Eftir leikinn fórum við heim og allt
í einu varð bara allt vitlaust, hundarnir trylltust og fuglarnir
klikkuðust og svona mínútu seinna kom þvílíkur stormur allir hlerar
og gluggar í blokkinni skelltust til og frá og allt bergmálaði í
kring, svo kom grenjandi rigning og þrumur. Við Saki notuðum
náttúrulega tækifærið og hlupum út í rigninguna og tókum góðan
göngutúr. Í gær var nefnilega 35. stiga hiti kl. 19.00, það var
engin sól og í svona miklum raka er í raun miklu heitara um eða um
40 gráður. Við vorum því ekki smá fegnar að fá rigningu til að kæla
okkur niður. Við enduðum svo á skólabarnum og horfðum á leik
Argentínu og Mexíkó.
Um kvöldið fórum við svo í svakalega
fínt partý hjá skólanum okkar, IED . Partýið var haldið í stórum
garði þar sem veðreiðar eru haldnar. Fína og fræga fólkið er víst
alltaf að djamma þarna og það kostar morðfjár að leigja garðinn.
IED getur nú líklegast borgað fyrir svona partý þar sem við borgum
svo há skólagjöld og í minni deild eru um 2000
manns og í Mílan
eru um 8000 krakkar í IED.
Þegar við komum inn þá hittum við
konuna sem er yfir IED og hún bað okkur nú endilega um að muna
eftir að taka með okkur “goody bag”. En allir fengu poka með
Tískutímaritum, bæklingum um skólann og e-h snyrtivörum.
Útskriftarnemarnir í fatahönnun voru
með svakaflotta tískusýningu og fræga og fínafólkið sat meðfram
sýningarpallinum en við stóðum alveg upp við hann mjög framalega.
Þetta var mjög flott tískusýning og krakkarnir eru að gera mjög
góða hluti.
Í kvöld var ég að flytja allt dótið
mitt til þar sem ég þarf að skila íbúðinni þann 7. júlí. Sólrún og
Saki hjálpuðu mér að flytja dótið til Óla og Esterar og svo fórum
við líka með heilmikið heim til Sólrúnar. Sólrún var á bíl þannig
að við vorum bara fljótar að þessu.
Framundan er mikill lærdómur og þar
sem hitinn er að drepa okkur þá erum við búnar að snú sólarhringnum
við. Vöknum kl. Þrjú á daginn og förum að sofa sjö á
morgnana.
Við erum reyndar búnar að kaupa okkur
viftur er þær gera svo lítið gagn þegar hitinn er svona mikill.
Annars er skólabarinn loftkældur og við förum því oft þangað og
fáum okkur einn kaldann.
Ég get ekki beðið eftir að komast
heim, það er alveg öruggt að ég verð ekki hérna næsta sumar, ef ég
á eftir próf þá ætla ég bara að fresta því fram í sept.
Ég talaði við Gabríel í dag og hann
er að blómstra á Patró, amma hans eldar svo góðan mat að hann er
búinn að þyngjast um þrjú kíló sem er alveg frábært. Hann fer líka
í sund á hverjum degi og er bara mjög ánægður. Ég sakna hans
rosalega mikið og hlakka til að hitta hann þegar ég kem til
Íslands.
Ciao, Ella
»
20.06.2006 13:35:27 / ella
Í kvöld er England að Spila við Svíþjóð og ég fer auðvitað á
barinn til að horfa á leikinn. Það er svo æðislegt að horfa á leiki
hérna úti, maður fer bara á barinn og hittir þar alla
skólafélagana. Þegar Ítalía er að spila þá er náttúrulega klikkað
stuð og þvílík tilfinningaflæði hjá Itölunum. Þeir eru þó talsvert
ólíkir Englendingum m.t.t. þess að þeir rífast um fótbolta en slást
ekki.
Þar sem ég bý með Sænskri stelpu þá er skyldumæting á þennan
leik. Við ætlum að fara með tveimur öðrum Svium þannig að það
verður stuð. Annar Svíinn er model hjá Armani en maður kippir sér
ekkert upp við það þar sem það er allt krökkt af fyrirsætum hérna.
Ég var t.d. að tala við einhvern strák á djamminu um dagin, hann
var voða sætur en samt ekkert guðdómlegur. Í gær var ég svo að lesa
Wallpaper og sá hann þar í einhverri heilsíðu-auglýsingu fyrir
Dolce & Gabbana. Ég verð nú að segja að þessar myndir sem þeir
taka eru lagaðar talsvert til.
Jæja nú er best að fara að halda áfram að teikna í AutoCadinu,
það fer þvílíkur tími í að sitja fyrir framan tölvuna. Ekkert
sólbað í dag frekar en fyrri daginn!
Ciao,
Ella
»
18.06.2006 21:37:21 / ella
Nú er orðið verulega heitt hérna í Mílan, í staðin fyrir að fá
mér að borða kvöldmat þá fór ég beint í ísbúðina. Það er ekki hægt
að klæðast neinu nema hlýrabolum og stuttum pilsum.
Ég kem til landsins þann 7. júlí kl. 14.45. Það verður gaman að
komast í smá kulda og rigningu, ha.ha.
Annars er mjög mikið að gera í skólanum og ég hef ekki geta
farið í sólbað nema einn dag í sumar! Um næstu helgi ætlum við að
grilla og liggja í sólbaði.
Hlakka til að hitta ykkur öll,
Ella
»
17.06.2006 07:23:29 / ella
Ef þið hafið ekki horft á
framhaldsþættina Prison Break, þá verðið þið að byrja á því ekki
seinna en strax. Aðalleikarinn er guðdómlega fallegur !! Loksins
er eitthvað gert fyrir okkur konurnar. Vinkona mín lánaði mér
fyrstu 13. þættina og ég horfði á þá í einum rykk. Vinur minn
lánaði mér svo síðustu 9 þættina og það var eins með þá ég gat
bara ekki hætt að horfa og vakti í alla nótt. Ég
er því ósofin og
byrjaði daginn á því að fara út að hlaupa rétt fyrir sjö í
morgun. Nú er orðið svo heitt hér í Mílan að ef maður ætlar
að gera eitthvað að viti þá er best að vakna kl. 6.00 á
morgnana. Um hádegi og fram eftir degi er steikjandi
hiti.
Í dag ætlum við Íslendingarnir að
halda uppa á daginn með því að fara í “pick nick” í voðalega
fallegan garð. Ítalska landsliðið er að keppa í fótbolta í
kvöld þannig að við
endum örugglega á hverfisbarnum og horfum á leikinn.
Moskító flugurnar eru orðnar ansi
aðgangsharðar og greyið hún Saki er öll bitin. Ég er með eitt bit
rétt við augað og er alveg að drepast. Bitin eftir þessar flugur
hérna í Mílan eru svakaleg, maður bólgnar svo hryllilega eftir
þau.
Nú á ég bara eitt próf eftir 5. júlí
og það er ansi stórt. Í þessu prófi þarf ég að kynna fyrir
tilvonandi viðskiptavini sem er jafnframt
prófdómari, íbúð
sem ég hannaði frá A-Ö. Auk teikninga af íbúðinni sem er á
þremur hæðum þá þarf ég að gera módel í skalanum 1:20 með
húsgögnum og öllum smáatriðum. Þetta er mjög skemmtilegt
verkefni en ansi tímafrekt og kennarinn minn sem er virtur
arkitekt hér í Mílan er mjög kröfuharður.
Ég kom annars rosalega miklu í verk í
nótt, horfði á heila seríu af Prison Break, gerði armbeygjur og
magaæfingar, snyrti á mér fætur og hendur, skipulagði sumarið,
svaraði tölvupósti og margt fl. Ef maður getur ekki sofnað þá
verður maður bara að nýta tímann til hins ýtrasta, ekki nenni ég að
eyða allri nóttinni í að reyna að sofna.
Jæja darlings, nú verð ég að byrja að
læra þannig að ég geti með góðri samvisku farið í pick nick kl
14.00 í dag. Auðvitað mæti ég með Íslenska fánann á svæðið, ég þarf
ekki að hafa áhyggjur að vera lamin þar sem Ítalir voru ekki með í
Eurovison þetta árið, ha.ha.ha.
Eins og Þuríður segir alltaf “Til
lífs og Gleði, aðallega til Gleði”
Love Ella
»
14.06.2006 01:58:29 / ella
Hæ elskurnar mínar.
Ég var í fjóra daga í Köben og það
var alveg frábært. Ég og Gabríel vorum komin um tvöleitið á hótelið
en Frosti og Freydís(systurdóttir hans) komu ekki fyrr en um
kvöldið.
Ég notaði fyrsta klukkutímann í að
mynda hótelherbergið, þvílík hönnun. Við gistum á Radisson SAS
Royal hotel, en það er hótel sem Arne Jacobsen hannaði. Úr
herberginu okkar var útsýni til tveggja átta frá 13. hæð og til að
komast í Tívolíð þá þurftum við bara að labba yfir götuna. Það var
æðislegt veður í Köben , samt frekar kalt, enda erum við Gabríel
vön því að vera í 25-30. stiga hita.
Tvær vinkonur mínar frá Íslandi
Kristbjört og Inga Lára komu í vikuheimsókn, Það var
alveg rosalega gaman að fá þær í heimsókn. Þær voru mjög duglegar
að versla og liggja í sólbaði eins og sönnum Íslendingum sæmir. Við
nutum lífsins og áttum yndislegan tíma saman. Ég þurfti að fara í
stórt próf og gat því ekki sinnt þeim eins og ég hefði viljað. En
það kom ekki að sök því þær voru svo uppteknar við að liggja í
sólbaði. Enda fóru tvær gullfallegar og sólbrúnar skutlur heim til
Íslands. Strákarnir eru enn að spyrja um þessar
fegurðardrottningar!!!
Ég hef alltaf vitað að Ítalir eru
mjög áhugasamir um fótbolta. Í gær þá var ég að labba í venjulegu
Íbúahverfi með vinkonum mínum þegar þvílík öskur heyrðust út um
allt. Já Ítalía hafði skorað mark á HM. Ég er ekki að grínast en
það var eins og við værum staddar í nágrenni við bar þar sem allir
fótboltaáhugamenn á Ítalíu væru saman komnir. Svo var ekki heldur
voru allir heima hjá sér að horfa á leikinn og allar götur tómar og
fagnaðarlætin bergmáluðu í hverfinu. Þetta var ótrúleg
upplifun.
Við skruppum svo á kaffihúsið á móti
skólanum mínum, strákarnir í skólanum voru búnir að loka götunni og
voru að spila fótbolta, þvílík stemming. Að lokum þurfti að kalla
út lögregluna því allt endaði í slagsmálum. Alveg dæmigert
!!!
Í kvöld fór ég með stelpunum úr
bekknum út að borða sushi og það var geðveikt gott og mjög
ódýrt. Við vorum 6.
saman, ein frá
Bandaríkjunum, tvær frá Ítalíu, ein frá Kóreu og önnur frá Svíþjóð.
Eftir matinn þá ákváðu stelpurnar að fara með mig á besta ísstaðinn
í bænum. Sara frá Ítalíu var á bíl og þegar við vorum búnar að
keyra í um 20. mínútur þá áttuðum við okkur á að við vorum búnar að
keyra í hring, vorum sem sagt aftur fyrir utan sushi staðinn. Það
er mjög erfitt að rata um Mílan og það tók okkur því um 40. mínútur
að komast á réttan stað. Ég fékk mér auðvitað ís og þvílík sæla,
þetta var besti ís sem ég hef á ævinni smakkað!
Þessi vika fer i að læra en í næstu
viku ætlum við vinkonurnar að leigja bíl og keyra um Ítalíu. Fyrir
4. daga þá borgum við 4000 kr. Maður verður að skoða landið fyrst
maður býr hérna á annað borð.
Love,
Ella 

»
29.05.2006 20:37:46 / ella
Í dag flutti Saki inn til mín, hún
er frá Svíþjóð og er með mér í bekk. Hún kemur þó ekki til með
að vera í skólanum á næsta ári þar sem hún er að flytja til
London. Kærastinn hennar er innanhúsarkitekt og er í mjög góðri
stöðu þar og hún ætlar í Kingston University til að læra
innanhúsarkitektúr.
Á morgun, þriðjudag fer ég til
Danmerkur og mig hlakkar ekkert smá til. Að vísu er rigningarspá
allan tíman sem ég verð þarna, en það er aldrei að marka þessar
spár.
Svo er það bara ljúfa lífið þegar ég
kem aftur til Mílan, þarf bara að hugsa um mig sjálfa og vinna í
verkefnum fyrir skólann.
Ciao Ella
»
27.05.2006 22:14:00 / ella
Sælar elskurnar, þessi helgi er
búin að vera alveg frábær. Ég fór í matarboð til Sólrúnar,
Ísabellu og Daníels í gærkveldi. Þau elduðu æðislegan mat og
buðu uppá rauðvín með.
Við sátum við kertaljós og
ljósaseríur með alla glugga opna uppá gátt og nutum
veðursins.
Hér í Mílan er frábært veður sól og
hiti. Ég labbaði með vinkonum mínum í bæinn í dag og við vorum
hreinlega að deyja úr hita, samt var ég mjög léttklædd, í stuttu pils,
hlýrabol og sandölum. Við Gabríel fengum okkur göngutúr í góða
veðrinu áðan og þrátt fyrir að það sé komið kvöld þá er mjög heitt
og notalegt úti. Ég hreinlega elska þessa veðráttu.
Nú fer að styttast í að Gabríel fari
heim til Íslands. Við fljúgum til Danmerkur á þriðjudaginn og það á
ekki eftir að vera smá einmannalegt þegar hann verður farinn þessi
elska.
Ef þið hafið áhuga þá getið þið farið
inná vef mbl.is og leitað í myndasafninu undir leitarorðinu Sólrún,
en þá getið þið séð mynd af Gabríel á Eurovision. Hann er að vísu
rangfeðraður en þið komið til með að þekkja
prakkarann.
Ciao,
Ella
»
22.05.2006 17:09:57 / ella
Við lentum í Aþenu á fimmtudegi og
um leið og fólk vissi frá hvaða landi við vorum, þá byrjaði það
að hneykslast á Silvíu Nótt. Þar sem við vorum ekkert búin að
fylgjast með fjölmiðlum þá vorum við viss um að við myndum vinna
þessa keppni en vorum nú farin að efast.
Fyrsta mál á dagskrá þegar við lentum
var að reyna að redda okkur miða á keppnina. Við vorum 5. enn áttum
bara 4. miða. Ekkert gekk að finna miða þannig að ég var orðin viss
um að ég þyrfti að sitja ein heima á hóteli og horfa á keppnina í
sjónvarpinu.
Við lögðum á okkur að fara alla leið
að Ólympíu höllinni til að reyna að kaupa miða, ferðin tók c.a 40.
mín með neðanjarðarlest. Engir miðar voru í boði þar.
Daginn sem keppnin var þá lögðum við
á stað snemma með lest, við vorum að flýta okkur frekar mikið og
gleymdum Íslenska fánanum !!! Þvílík mistök.
Við komum að Ólympíu höllinni með
Metro og þvílík sjón, hún er rosalega stór og umhverfið í kringum
hana er fallega hannað.
Ræddar vorum ýmsar leiðir til að
smygla Gabríel inn en þegar við komum að hliðinu þá leist okkur
ekki á blikuna þar sem öryggiskerfið var svo strangt,
málmleitartæki og læti og auðvitað fullt af
öryggisvörðum!
Þegar strákarnir fóru að skipta
staðfestingarskjalinu fyrir miða þá var fullt af fólki að reyna að
selja miða og ég gat valið um staðsetningu og verð, þvílík heppni.
Nú var bara að prútta og fékk ég miða á góðum stað fyrir miðju
frekar framalega.
Ég vildi frekar sitja hjá Gabríel og
krökkunum þannig að við ákváðum að ég myndi bara sitja undir honum.
Það kom svo í ljós að okkar sæti voru í fremstu röð á svölum frekar
nálægt sviðinu þannig að það var ekki vandamál með pláss. Einnig
voru tvö sæti við hliðina á okkur sætum laus þannig að ég fékk sæti
líka og það fór bara vel um okkur, allt er gott sem endar vel!!!
Það var bara eitt sem vantaði Íslenska fánann, við hefðum getað
lagt hann yfir handriðið á svölunum, hann hefði ekki verið smá
áberandi !!!
Nú loksins skildi ég af hverju fólk
fer á þessa keppni ár eftir ár, þvílíkt ljósadýrð og
gleði.
Ég var alveg dolfallin þegar
opnunaratriðið byrjaði, það var virkilega flott.
Gabríel var með stjörnur í augum og
skemmti sér rosalega vel. Hann var einn af fáum krökkum sem voru
þarna á svæðinu.
Áður en keppnin byrjaði þá sendi hann
mig til að finna sjálflýsandi hálsmen og á meðan ég var í burtu þá
tók blaðamaður myndir af Sólrúnu, Benna, Óla og Gabríel. Hann var
frekar ánægður með það. Ef þið sjáið þessa mynd þá endilega látið
mig vita þannig að ég geti sýnt honum hana.
Nú var komið að Íslandi og við vorum
í þvílíkum gír og spennt að sjá vinningslagið, um leið og Silvía
Nótt og Íslenski hópurinn stigu á svið þá var púað geðveikt ! Við
vorum eftir allt bara heppin að vera ekki með Íslenska fánann., því
þá hefðum við eflaust verið barin í klessu. 
Talandi um dónaskap, Sílvía var ekki
ein á sviðinu og þó svo að hún hafi sagt eitthvað miður fallegt þá
er hrikalega dónalegt að púa, fólk er búið að leggja hrikalega
mikið á sig og það er ekki okkar sök ef þessir dónar hafa engan
húmor.. Ég sagði við konuna fyrir aftan mig að hætta að púa af því
að ég væri að reyna að hlusta á lagið og þá gaf hún mér bara
fingurinn, bíddu var hún ekki að hneykslast á Silvíu fyrir
dónaskap. 
Við ákváðum þá bara að fagna
hrikalega og stóðum bara upp og dönsuðum á meðan að hún flutti
lagið og fögnuðum svo vel á eftir.
Næsta dag fórum við að skoða allt það
merkilegasta í Aþenu og hún hefur ekki breyst smá á þeim 10. árum
frá því að ég kom þangað síðast með Sigrúnu Ósk. Þá fannst mér
borgin ljót en núna var hún þvílíkt falleg og mannlífið mjög
skemmtilegt.
Ég kannaðist bara ekkert við mig, það
hefur orðið þvílík uppbygging vegna þess að þeir héldu
Ólympíuleikana 2004.
Við rákumst á dansarana, Romario og
Gísla og Gabríel fékk að sjálfsögðu eiginhandaráritun hjá
þeim.
Ciao,
Ella og Gabríel
»
16.05.2006 22:10:20 / ella
Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar elskurnar mínar!
Ester, það verður partý hjá mér 3. júní !
Ég er farin til Aþenu, sjáumst 
»
14.05.2006 07:36:20 / ella
Ég vaknaði snemma í morgun eða um
hálf átta. Það er alveg yndislegt að vakna á undan öllum öðrum
sérstaklega um helgar. Ég byrjaði daginn á líkamsskrúbbi og
sturtu síðan fékk ég mér ný kreistan safa úr eplum, appelsínum,
gulrótum, engifer, sítrónu og jarðaberjum, þvílík vítamínbomba.

Gabríel vaknaði þegar ég var að ná
mér í handklæði, hann sagði bara “ til hamingju með daginn elsku
mamma” lokaði síðan augunum og hélt áfram að sofa.
Hann fór með mér að versla fyrir
afmælið í gær, hann var svo spenntur að hann vildi endilega kaupa
blöðrur og kerti. Það var eins og við værum að kaupa inn fyrir
afmælið hans því allt sem hann kom með var blátt ! Svo fór hann nú
alveg með það þegar hann birtist með kerti, hann var voða ánægður
að hafa fundið réttu kertin fyrir mig, en það voru kerti sem voru
númeruð 38!! 
Ég fór í bæinn í gær með Ievu og
Sólrúnu, við fórum í H&M og ég keypti mér sumarföt. Við fórum
svo út að borða á kínverskum veitingastað og fengum alveg frábæran
mat.
Á eftir fengum við okkur auðvitað
ítalskan ís, þvílík sæla.
Í kvöld verður svo matarboð hjá mér
hér er matseðilinn:
Forréttur 1:
Hráskinka og hunangsmelóna
Forréttur 2:
Mascopone ostur með eggaldin, basil
og tómötum.
Aðalréttur:
Nautafilet með Sherry sósu ala Hulda
& Hörður + meðlæti
Eftirréttur 1:
Nýbökuð súkkulaðiterta með ís og
jarðaberjum.
Eftirréttur 2:
Rauðvín og ostar.
Það verða 3. gestir í mat hjá mér í
kvöld, en það eru
Sólrún, Óli og Benni.
Við ætlum líka að taka púlsinn á
Eurovision keppninni
þar sem við förum til Aþenu á næsta miðvikudag! Óóó já, það eru
bara 2. dagar þar til að við förum.
Ástarkveðja,
Ella

»
Síður: 1 2 3
|
|